Til baka á forsíðu...

Rannsóknarverkefni/Research Projects
Rannsóknaraðstaða/Laboratory Útgáfa/Publications
Starfsfólk/Members of Staff

Féttir úr starfseminni

Kynning á rannsóknum á beitukóngi
Þann 16. desember tóku Vör og teymi sameindaerfðafræðinga við náttúruvísindasvið Háskóla Íslands á móti starfsfólki arfgerðargreiningardeildar Decode og fræddi þau um starfsemi sína. Vör kynnti rannsóknir setursins á líffræði og stofnerfðafræði beitukóngs og féll það í hlut Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur að fjalla almennt um margslungna lífshætti beitukónga en Snæbjörn Pálsson kynnti fyrstu niðurstöður um skyldleika beitukónga í Norður Atlantshafi sem og við Ísland. Mjög ánægjulegt var að fá tækifæri til þess að kynna rannsóknir Varar í svo góðum hópi og líflegar og skemmtilegar umræður spunnust um ýmsa þætti líffræði beitukóngs sem og nýtingu.

Molluscan Forum 2011
Rannsóknir á beitukóngi í Breiðafirði voru kynntar á árlegri ráðstefnu félagsins The Malacological Society of London um lindýr (Mollusca) sem haldin var í London 30. nóvember. Þar kynnti Kathryn Smith niðurstöður rannsókna sinna frá því í apríl og maí þegar hún safnaði beitukóngseggjum í Breiðafirði til rannsókna á þroskun beitukónga. Katie flutti eggjamassa beitukónga með sér til Bretlands og þar framkvæmdi hún tilraunir á breiðfirskum beitukóngum í rannsóknaraðstöðu við University of Southamton. Titill kynningar hennar var Living with acidification: the effects of rising seawater pCO2 on juvenile development in the common whelk Buccinum undatum.
PDF Veggspjald PDF

Líffræðiráðstefnan 2011
Katalin Tóth, Vigdís Sigurðardóttir, René Groben og Erla Björk Örnólfsdóttir sóttu ráðstefnu líffræðifélagsins dagana 11. og 12. nóvember og nutu fjölbreytilegrar dagskrár en 158 rannsóknir voru kynntar á ráðstefnunni. Auk þess að fræðast um grósku rannsókna á Íslandi, nýtti starfsfólk Varar tækifærið og kynnti þrjú rannsóknarverkefna sinna en þau voru:
Erfðafræðileg aðgreining beitukónga (Buccinum undatum L.) við Ísland og í N-Atlantshafi.
Snæbjörn Pálsson, Hildur Magnúsdóttir, Sigrún Reynisdóttir, Zophonías O. Jónsson og Erla Björk Örnólfsdóttir.
Discovery and distribution of Mediopyxis helysia Kühn, Hargraves & Halliger in Breiðafjörður.
Erla Björk Örnólfsdóttir, Sólveig R. Ólafsdóttir, Agnes Eydal og Karl Gunnarsson.
Feeding and fecundity of Calanus finmarchicus and Temora longicornis in Breiðafjörður.
Vigdís Sigurðardóttir, Jörundur Svavarsson, Ástþór Gíslason og Erla Björk Örnólfsdóttir.


Nýr starfsmaður ráðinn til starfa

Þann 1. október kom René Groben til starfa hjá Vör. René hefur lokið doktorsprófi í sameindaerfðafræði og hefur mikla reynslu af rannsóknum á svifþörungum í sjó og vötnum. René mun hafa umsjón með rannsóknarverkefninu "Kræklingur og hörpudiskur: Greining fæðugerða með erfðagreiningu (metagenomics)" auk þátttöku í öðrum rannsóknarverkefnum Varar.

Kynning rannsókna á ráðstefnu ICES
Vigdís Sigurðardóttir sótti árlega ráðstefnu ICES í Gdansk í Póllandi dagana 19.-23. september. Á ráðstefnunni kynnti hún rannsóknir sínar undir yfirskriftinni: Feeding and fecundity of Calanus finmarchicus and Temora longicornis in Breiðafjörður, West Iceland, in 2008 and 2009.

Námskeið fyrir doktorsnema í sjávarlíffræði
Námskeið doktorsnemaDagana 4.-14. ágúst var haldið námskeið undir yfirskriftinni From bloom to gloom í aðstöðu Varar. Námskeiðið var fjármagnað með styrk frá NordForsk og að skipulagningu námskeiðsins komu vísindamenn frá DTU Aqua (Danmarks Tekniske Universitet) í Danmörku, Háskólanum í Tromsø í Noregi, Vör og Háskóla Íslands. Alls sóttu 16 doktorsnemar í líffræði frá norrænum háskólum námskeiðið og nutu leiðsagnar 15 prófessora og sérfræðinga sem komu frá DTU Aqua, Texas A&M Unveristy og University of Southern California í Bandaríkjunum, Southampton University í Bretlandi, Univeristy of Tromsø í Noregi, Hafrannsóknarstofnuninni á Íslandi sem og frá Háskóla Íslands auk Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur.
Nám framhaldsnemanna fólst í því að rannsaka vöxt svifþörunga, fæðunám dýrasvifs og sethraða lífrænna agna í hafinu. Teknar voru ljósmyndir af ögnum í vatnbolnum sem og sýni úr sjó og úr setgildrum í Grundarfirði þar sem hann er dýpstur og farið með þau í Vör til frekari úrvinnslu og tilraunavinnu. Meðal annars voru settar upp tilraunir þar sem hermt var eftir aðstæðum í sjónum og samþyrping agna metin. Tilraunirnar voru þáttur í að auka skilning nemenda á flæði orku um svifþörunga og dýrasvif til botns og þær umhverfisaðstæður sem geta haft áhrif á afdrif Námskeið doktorsnemakolefnis í sjónum. Nemendum var skipt í fjóra hópa og vann hver hópur að tveimur verkefnum. Í lok námskeiðsins voru allar mælingar nemenda teknar saman og útbúið tölvulíkan sem tengdi saman niðurstöður allra rannsóknanna og varpaði ljósi á flæði kolefnis í vatnsbol Grundarfjarðar. Gekk námskeiðið vel enda einstaklega áhugasamir nemendur á ferð og einkunnagjöf nemenda sýndi að þau voru hæstánægð með kennsluna og fyrirkomulag allt. Árangur námskeiðsins var slíkur að ekki er ósennilegt að reynt verði að halda sambærilegt námskeið að nýju á komandi árum.
Samvera nemenda og kennara á námskeiði sem þessu skapar grundvöll samvinnu, mótun tengslahópa auk kynningar á rannsóknum Varar, rannsóknaaðstöðu sem Vör hefur upp á að bjóða, auk þeirra viðfangsefna sem við blasa í vistkerfi Breiðafjarðar á orkuflæði um fæðuvefinn. Jafnframt eykst þekking nemenda og kennara á náttúru Íslands og þeim tækifærum sem hér liggja í rannsóknum almennt, en ekki eingöngu á lífríki Breiðafjarðar.

Kynning rannsókna á ráðstefnu Pycological Society of America
Erla Björk Örnólfsdóttir sótti fagráðstefnu þörungafræðinga í Bandaríkjunum (Phycological Society of America) 12.-16. júlí í Seattle. Þar kynnti Erla Björk Örnólfsdóttir fund nýrrar svifþörungategundar, Mediopyxis helysia við Ísland fyrir ráðstefnugestum og var titill kynningar hennar: Discovery and distribution of Mediopyxis helysia Kühn, Hargreaves & Halliger in Breiðafjörður, West Iceland.

Tveir sumarstarfsmenn
Starfskraftar sumarsins 2011 eru þær Valgerður Hlín Kristmansdóttir og Ellen Magnúsdóttir. Er þetta annað sumarið sem Valgerður vinur hjá Vör og mun hún meðal annars vinna að rannsókn á fæðuvali kræklings og hörpudisks líkt og síðastliðið sumar. Ellen mun taka þátt í sýnatökuleiðöngrum Varar en jafnframt vinnur hún að rannsóknum fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og Rannsóknasetur HÍ á Snæfellsnesi.

Nýtt verkefni hjá Vör
Þann 3. maí 2011 fékk Vör samþykkta styrkumsókn fyrir nýju verkefni sem sett verður á laggirnar nú í sumar. Verkefnið heitir Mæling á magni eiturþörunga: Sérvirk ljómun eiturþörunga með þáttapörun á flúrmerktum þreifurum. Megin markmið verkefnisins er að meta fjölda og stofngerð eiturþörunga í sjó á kræklingaslóð.

Vísindaveisla
Þann 30. apríl tók Vör þátt í vísindaveislu í Stykkishólmi ásamt öðrum meðlimum W-23 hópsins og Háskólalestar Háskóla Íslands. Með vísindaveislunni var slegið saman árlegu vísindakaffi sem W-23 hópurinn hefur haldið á Snæfellsnesi undanfarin 2 ár og heimsókn Háskólalestarinnar í Rannsóknasetur HÍ á Snæfellsnesi og Stykkishólm í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands. Í vísindaveislunni kynnti starfsfólk rannsóknir Varar og ræddu við gesti um lífríki sjávar. Dagskrá vísindaveislunnar var einstaklega fjölbreytt og skemmtileg fyrir fólk á öllum aldri.

Katie Smithes breskur doktorsnemiHeimsókn doktorsnema til Varar
Kathryn Smith, frá School of Ocean and Earth Science, National Oceanography Centre, Southampton, kom til Varar í apríl til þess að vinna að doktorsverkefni sínu. Doktorsverkefni Katie fjallar um beitukóng og áhrif þrýstings og sýrustigs sjávar á þroskun beitukónga úr eggi. Katie safnaði eggjamössum beitukónga úr Breiðafirði með aðstoð starfsfólks Varar. Eggjamössunum var haldið lifandi í ræktunaraðstöðu sem hún setti upp í rannsóknarstofu Varar. Katie vann að rannsóknum sínum í þrjár vikur í Ólafsvík en snéri síðan til baka til Bretlands með feng sinn og hélt tilraunum sínum áfram í Southampton. Auk þess að vinna að eigin rannsóknum aðstoðaði Katie við ýmis verkefni Varar sem upp komu á meðan á dvöl hennar stóð.

Erindi á ráðstefnunni: Ný innlend fóðurhráefni til notkunar í fiskeldi
Erlu Björk Örnólfsdóttur var boðið að halda erindi á ráðstefnu sem skipulögð var af Matís ohf. og haldin í húsakynnum stofnunarinnar þann 8. apríl 2011. Erindi EBÖ var nefnt; Margt smátt gerir eitt stórt: Eru svifþörungar orkuboltar aldarinnar? Ráðstefnan fjallaði um mjög víðfeðmt svið fóðurframleiðslu og tæpti EBÖ á eiginleikum svifþörunga og kostum þeirra til ræktunar fyrir fóðurframleiðslu.

Erindi á afmælisráðstefnu sjálfstæðisfélagsins Skjaldar í Stykkishólmi
Erla Björk Örnólfsdóttir hélt erindi á ráðstefnu sjálfstæðisfélagsins Skjaldar í Stykkishólmi í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Ráðstefnan var haldin þann 5. mars 2011. Yfirskrift ráðstefnunnar var Hvernig sköpum við ný atvinnutækifæri í Stykkishólmi og nágrenni og styrkjum samfélagið á Snæfellsnesi. Erindi Erlu Bjarkar bar yfirskriftina: Með hagnýtum rannsóknum á auðlindum svæðisins. Í erindi sínu skilgreindi Erla; a) forsendur rannsókna í héraði, b) fjármögnunarleiðir þ.e. fjölda rannsóknasjóða, c) forsendur framkvæmda, d) sóknartækifæri og e) ögranir.

Heimsókn í Lionsklúbb Stykkishólms
Þann 24. febrúar kynnti forstöðumaður Varar rannsóknir og starfsemi setursins fyrir félagsmönnum Lionsklúbbs Stykkishólms. Titill erindis Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur var; Frá borði til botns: Stiklað á stóru í rannsóknum Varar.

Heimsókn Soroptimistaklúbbs Snæfellsness í Vör
Þann 8. febrúar 2011 komu félagskonur Soroptimistaklúbbs Snæfellsness í vinnustaðaheimsókn til Varar og forstöðumaður setursins kynnti bakgrunn, hugmyndafræði, rannsóknir og rannsóknaraðstöðu setursins fyrir hópi mjög svo áhugasamra kvenna.

Samstarf Grunnskóla Snæfellsbæjar og Varar
Í byrjun árs hélt samstarf Varar og Grunnskóla Snæfellsbæjar áfram og vann Danielle verkefni með nemendum Grunnskóla Snæfellsbæjar, Lýsuhóli. Verkefnið vann Danielle með nemendum á sambærilegan máta og í öðrum deildum Grunnskóla Snæfellsbæjar og mæltist það vel fyrir. Fjallað var um fæðuvef Breiðafjarðar og þorskar krufðir og fæðuval greint. Í lok vinnu sinnar var þorskurinn síðan eldaður og snæddur af nemendum og kennurum þeirra.

Fréttasafn





VÖR - Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 4366926 - Netfang: vor@sjavarrannsoknir.is