Rannsóknarverkefni/Research Projects

Velkomin á heimasíðu Varar Sjávarrannsóknarseturs við Breiðafjörð!

VÖR er sjálfseignarstofnun og standa 22 aðilar að baki stofnuninni. Eitt meginmarkmið stofnunarinnar er að rannsaka lífríki Breiðafjarðar með það að leiðarljósi að auka þekkingu okkar á vistkerfinu og nýtingamöguleikum auðlinda svæðisins. Rannsóknir Varar tengjast athugunum á fæðuvef Breiðafjarðar og samspili frumframleiðslu og efri fæðuþrepa.
Vör hóf starfsemi sína árið 2006 og í ársbyrjun 2008 flutti starfsemin í eigið húsnæði að Norðurtanga, Ólafsvík. Rannsóknaraðstaðan er rúmgóð og nýtist vel til rannsókna bæði fyrir starfsfólk Varar sem og gestkomandi rannsóknarmenn. 

Rannsóknaraðstaða/Laboratory
Útgáfa/Publications
Starfsfólk/Members of Staff
Um Vör/About Vör

Kynning á rannsóknum á þroskun beitukónga
Rannsóknir á beitukóngi í Breiðafirði voru kynntar á fagráðstefnu samtakanna Society for Integrative and Comparative Biology 3.-7. janúar í Charleston, Suður Karólínu. Þar kynnti Kathryn Smith niðurstöður rannsókna sinna sem byggja á vinnu hennar frá síðasta ári þegar hún safnaði beitukóngseggjum í Breiðafirði til rannsókna á þroskun beitukónga.

Meira...


VÖR - Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 4366926 - Netfang: vor@sjavarrannsoknir.is