Til baka á forsíðu...

Rannsóknarverkefni/Research Projects
Rannsóknaraðstaða/Laboratory Útgáfa/Publications
Starfsfólk/Members of Staff

Vigdís SigurðardóttirVigdís Sigurðardóttir
M.S.nemi


Ég kem frá Eyrarbakka og sem barn eyddi ég miklum tíma í fjörunni þar. Við 14 ára aldur hóf ég sumarstörf í Humarvinnslunni ehf. þar sem áhugi minn á sjávarlífi kviknaði, og þá sérstaklega á krabbadýrum. Nú vinn ég að dýrasvifsrannsóknum og á humar sem gæludýr.

Mastersverkefni mitt fjallar um dýrasvif í Breiðafirði sumurin 2007-2009. Markmiðið er að rannsaka:
a) Ársferla dýrasvifs. Skoðaður verður staðbundinn og árstíðabundinn breytileiki í magni og samfélagsgerð dýrasvifs.
b) Orkubúskap dýrasvifs. Metin verður eggjaframleiðsla tveggja lykiltegunda krabbaflóa (copepoda) í firðinum; Calanus finmarchicus og Temora longicornis, með tilliti til fæðu og fæðuframboðs.

Sýni voru tekin á 10 daga fresti frá vori og fram á haust á tveimur stöðvum í Breiðafirði. Verkefnið byrjaði vorið 2008 og verður framhaldið til loka ársins 2010.

Rannsóknalega séð liggur áhugi minn á vistkerfum uppsjávarins, og þá sérstaklega á lægri stigum vistkerfisins. Ég vil auka við skilning á grunni fæðukeðjunnar; dýrasvifi og hvað það er að éta, lífslíkur þess og afkoma, og hvernig breytingar innan dýrasvifssamfélagsins hafa áhrif á fæðukeðjuna í heild og orkuflutning.

Utan rannsókna liggur áhugi minn í ljósmyndun og í maí 2009 hélt ég mína fyrstu ljósmyndasýningu með landslagsljósmyndum frá Íslandi.

Menntun
2009. Námskeið hjá DTU Aqua: The challenge of pelagic feeding: from prey detection to secondary production – The challenge of measuring: from bottle to open ocean. Hirtshals, Danmörku, ágúst 2009.
2007. B.S. Líffræði. Háskóli Íslands.
2004. Stúdent af náttúrufræðibraut. Fjölbrautaskóli Suðurlands.
2000. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Veggspjöld, fyrirlestrar og verkefni


Orkubúskap dýrasvifs.
Metin verður eggjaframleiðsla tveggja lykiltegunda krabbaflóa (copepoda) í firðinum; Calanus finmarchicusog Temora longicornis, með tilliti til fæðu og fæðuframboðs

Vigdís Sigurðardóttir, Erla Björk Örnólfsdóttir og Ástþór Gíslason. Veggspjald: Frjósemi krabbaflóa í Breiðafirði. Afmælisráðstefna Líffræðifélagsins. Reykjavík, nóvember 2009.

Vigdís Sigurðardóttir og Erla Björk Örnólfsdóttir. Fyrirlestur: Zooplankton in Breiðafjördur; feeding and fecundity.

Námskeið DTU Aqua, The challenge of pelagic feeding: from prey detection to secondary production –
The challenge of measuring: from bottle to open ocean.
Hirtshals, Danmörku, ágúst 2009.

Vigdís Sigurðardóttir, Erla Björk Örnólfsdóttir og Ástþór Gíslason. Veggspjald: Dýrasvif í Breiðafirði sumurin 2007 og 2008. Ráðstefna Hafrannsóknastofnunarinnar, Sjór og sjávarlífverur. Reykjavík, febrúar 2009.

Utan rannsókna
Vigdís Sigurðardóttir. Fyrirlestur: Hvernig tekur maður “góðar” myndir? Menntaskólinn við Hamrahlíð, febrúar 2010. Vigdís Sigurðardóttir. Fyrirlestur: Hvernig tekur maður “góðar” myndir? Félagsmiðstöðin Zelsius Selfossi, júlí 2009. Vigdís Sigurðardóttir. Ljósmyndasýning með landslagsljósmyndum frá Íslandi. Eyrarbakka, maí 2009.

Ljósmyndasíða www.flickr.com/vigdis



VÖR - Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 4366926 - Netfang: vor@sjavarrannsoknir.is